Leitin að peningunum

Fyrirtækið þú, skattar, rekstur og stofnun fyrirtækja - Árni Þór Hlynsson

June 22, 2021 Umboðsmaður skuldara Episode 38
Leitin að peningunum
Fyrirtækið þú, skattar, rekstur og stofnun fyrirtækja - Árni Þór Hlynsson
Show Notes

Árni Þór Hlynsson er framkvæmdastjóri Skatts og bókhalds sem sér um bókhald og reikningsskil fyrirtækja.  Hann hefur unnið við fyrirtækjaráðgjöf varðandi rekstur, bókhald og skattamál í áratugi.  
Hann ræðir í þessu viðtali allt það sem viðkemur rekstri einstaklinga og fyrirtækja. Við ræðum í þessu viðtali meðal annars. 

 

Hvort Íslendingar séu skattafælnir? 

  • Hvað þarf maður að gera ef maður vill fara að vinna í bókhaldi eða endurskoðun? 
  • Hvenær þarf maður að fara að stofna til rekstur t.d ef maður er að afla tekna til hliðar? 
  • Hvenær leggur maður virðisaukaskatt á tekjur sínar? 
  • Hvað þýðir það að vera með rekstur á eigin kennitölu? 
  • Skattaprósentur á rekstur fyrirtækja samanborið við skatt á einstaklinga. 
  • Hvað kostar að stofna fyrirtæki? 
  • Hvenær á maður að stofna fyrirtæki um reksturinn? 
  • Hvernig skatturinn hefur í dag breyst í þjónustustofnun sem vill hjálpa fólki. 
  • Ábyrgð við rekstur á eigin kennitölu og fyrirtækjareksturs. 
  • Hver er munurinn á eftirfarandi félagaformum, EHF, HF, SLF SLHF og SF? 
  • Mismunandi arðgreiðslur og ábyrgð úr ólíkum félagaformum? 
  • Launatengd gjöld hver eru þau? 
  • Hvað á maður að greiða sér há laun í rekstri?
  • Hvaða mistök Árni sér fólk gera við rekstur og stofnun fyrirtækja? 
  • Hvað er kennitöluflakk? 
  • Hverju Árni myndi breyta í íslenskum skattalögum.   

Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson.  
Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.