Gestur þáttarins í dag er Kolbrún Sara Larsen. Kolbrún er einn stjórnenda hópsins FIRE á Íslandi, hjúkrunarfræðingur, annar stjórnenda hlapvarpsins Peningakastið og sjálflærður heimilisfjármálafræðingur.
Í þættinum ræðum við meðal annars
- Hennar fyrstu kynni af FIRE-hreyfingunni
- Leitina að upprunanum, sem Kolbrún á stóran þátt í að varð til
- Leiðir Kolbrúnar að því að verða fjárhagslega sjálfstæð
- Þær aðgerðir sem Kolbrún hefur gripið til til að draga úr útgjöldum og auka tekjur
- Lífsgæðin sem eru meiri í fjárhagslegu sjálfstæði en dauðum hlutum
- Ágæti þess að leigja út hluta af húsnæðinu sínu
Og margt fleira.