Þjóðleikhúsið

Leikstjóraspjall 5 – Gréta Kristín og Hilmar Guðjóns í viðtali við Önnu Maríu eftir námskeið með Yaël Farber

January 05, 2021
Þjóðleikhúsið
Leikstjóraspjall 5 – Gréta Kristín og Hilmar Guðjóns í viðtali við Önnu Maríu eftir námskeið með Yaël Farber
Show Notes

Leikhúshlaðvarp Þjóðleikhússins flytur nú leikstjóraspjall í sex þáttum. Þjóðleikhúsið bauð í nóvember 2020 upp á master class námskeið fyrir leikstjóra. Kennari á námskeiðinu var hinn margverðlaunaði suður-afríski leikstjóri Yaël Farber, sem kom hingað til lands til að leikstýra Framúrskarandi vinkonu á Stóra sviðinu. Samvinnan við Farber hefur veitt leikhúslistafólki Þjóðleikhússins mikinn innblástur en vegna Covid-19 faraldursins þurfti að gera hlé á æfingum og fresta frumsýningu, og þá var ákveðið að bjóða fleiri íslenskum leikhúslistamönnum að kynna sér vinnuaðferðir Farber. Þrettán leikstjórar nutu leiðsagnar hennar á tveimur masterclass námskeiðum og í kjölfarið fengum við í Leikhúshlaðvarpinu Önnu Maríu Tómasdóttur, sem er aðstoðarleikstjóri Farber í Framúrskarandi vinkonu og var meðal þátttakenda á námskeiðinu, til að taka viðtöl við hina leikstjórana, tvo og tvo í senn, um starf leikstjórans og þann innblástur sem námskeiðið með Farber hefur veitt þeim.