
Hlaðvarp Almenna, lífeyrismál á mannamáli
Hlaðvarp um lífeyrismál og hvaðeina sem þeim við kemur. Leitast er við að útskýra hlutina á mannamáli.
Hlaðvarp Almenna, lífeyrismál á mannamáli
#2 Fjárfestingarstefna, prjónauppskriftir og reiknað endurgjald
•
Halldór
•
Season 1
•
Episode 2
Aðalefni þáttarins er fjárfestingarstefna Almenna fyrir árið 2021. Kristjana Sigurðardóttir, fjárfestingarstjóri Almenna greinir frá helstu breytingum á fjárfestingarstefnu og skýrir góða ávöxtun síðasta árs. Í lífeyrisleyndardómnum útskýrir Þóra Margrét Birgisdóttir, kennari og fyrirtækjaeigandi í Stykkishólmi, hvernig umræða um lífeyrismál hljómar fyrir henni. Í Almennu lífeyrisorðabókinni er tekið fyrir fyrirbærið reiknað endurgjald.
0:00 Inngangur
00:30 Eva Ósk Eggertsdóttir
01:33 Kristjana Sigurðardóttir, um ávöxtun 2020
08:38 Breytingar á fjárfestingarstefnu
14:25 Tæknin og miðöldrun
16:20 Prjónauppskriftir og lífeyrismál, Þóra Margrét Birgisdóttir
24:12 Hvað er reiknað endurgjald?