1 á 1: Kristófer Acox í einlægu spjalli

Karfan

Karfan
1 á 1: Kristófer Acox í einlægu spjalli
Aug 16, 2018 Season 2 Episode 2
Karfan.is/Ólafur Þór

Í þessum fyrsta þætti af 1 á 1 hjá Körfunni er gesturinn Kristófer Acox. Kristófer er nýjasti atvinnumaður Íslendinga í körfubolta og flytur til Frakklands á næstu dögum. Í þættinum er rætt um agann í Bandaríkjunum, titlana hjá KR, landsliðið, ævintýrin í Filipseyjum og B5 svo einhver dæmi séu tekin.

Umsjón: Ólafur Þór Jónsson

Efnisyfirlit:

1:45 - Uppeldið í Vesturbænum - Upprennandi framherji í fótbolta

8:30 - Miðskóli í Bandaríkjunum - „Sprakk í loft upp”

17:30 - Vinsæll í Furman, næstum farinn heim eftir eitt ár

25:45 - Sambandið við foreldrana - „Væri ekkert í dag ef það væri ekki fyrir mömmu“

32:00 - Endurkoman í KR - „Gat ekki orðið allt öðruvísi leikmaður á þessu eina ári“

43:00 - Heimsfrægur í Filipseyjum - Elskaður og hataður

55:15 - Síðasta tímabil: „MVP viðurkenningin var titlingaskítur hliðin á Íslandsmeistaratitlinum“

1.04:30 - Næstum farinn til ÍR í sumar en endaði í Frakklandi

1.11:30 - Landsliðið: „Kynslóðaskipti er þreyttasta orð sem ég veit um“

1.16.00 - Umræða um komandi tímabil í Dominos deild karla

1.21:00 - „Mér finnst gaman að geta gefið til baka“

1.22:45 - B5 og umræðan um Kristófer

1.26:30 - „Planið að koma ekki heim næstu 10 ár“