Ótímabær kraftröðun Dominos deildar kvenna #2 - Power Ranking

Karfan

Karfan
Ótímabær kraftröðun Dominos deildar kvenna #2 - Power Ranking
Sep 12, 2018 Season 2 Episode 9
Davíð Eldur / Ólafur Þór
Nú þegar styttast fer í tímabilið eru leikmannahópar liðanna að skýrast. Enn er margt óljóst en leikmannamarkaður sumarsins hefur verið ansi tíðindamikill. Á dögunum gaf Karfan út mjög ótímabæra kraftröðun þar sem staðan á liðunum var metin. Nú er komið að annarri útgáfu. Í þessum þætti förum við yfir liðin í Dominos deild kvenna ásamt Bryndísi Gunnlaugsdóttur. Það skal tekið fram að nýja röðunin verður aðgengileg á rituðu sniði inni á Körfunni með kvöldinu. Umsjón: Ólafur Þór og Davíð EldurDagskrá:00:00 - Létt hjal02:40 - KR, Haukar og Breiðablik14:40 - Skallagrímur, Valur og Snæfell25:00 - Stjarnan og Keflavík34:05 - Besti leikmaður, besti ungi og besti þjálfari?