Þvottahúsið og Geimsýran
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu skilgreinst sem andleg og heimspekileg.
Þvottahúsið og Geimsýran
Kolbrún Karlsdóttir ferðalangur er nýkomin úr Amazon
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er ferðfrumuðurinn Kolbrún Karlsdóttir.
Kolla eins og hún er kölluð er þó ekki bara ferðafrumuður í hefðbundnum skilning heldur er einnig um hugvíkkandi ferðalög að ræða. Kolla sem kynntist Ayahuasca fyrir mörgum árum síðan hefur tekið algjöra stefnubreytingu í lífi sínu síðan að hún fór í sína fyrstu athöfn. Síðan þá hefur hún farið í yfir 100 athafnir og upplifir að í gegnum það ferli hafi hún öðlast alveg nýja sýn á bæði sitt eigið líf sem og samfélagið sem hún tilheyrir.