
Þvottahúsið
Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins.
Alkastið er örverpi Þvottahússins.
Alkastið samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium a.k.a Cliff W. og Arnóri Jónssyni a.k.a Nóra Breiðholt ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi.
Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland.
Þvottahúsið
Einar Mikael er töframaður
Nýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er engin annar en töframaður Íslands, húsasmiðurinn og þrívíddarprentunar meistarinn Einar Mikael.
Einar sem landsþekktur er fyrir töfrabrögð hefur síðustu misseri hefur Einar verið önnum kafin við að þrívíddarprenta hefðbundinn hús, kirkjur og alla vita landsins. Þrívíddar ævintýrið hófst þegar hann var beðin um að prenta kirkju Patreksfjarðar og útkoman var svo stórkostleg að ekki var aftur snúið. Nú skipta kirkjurnar tugum sem Einar hefur prentað og ekki nóg með það þá hefur hann snúið sér að þrívíddarprenta alla vita landsins.