Fljúgum hærra
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni.
Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun.
Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum
Fljúgum hærra
27) Billy Idol - Breski pönkarinn sem fann frægð og frama í Bandaríkjunum
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Billy Idol er eflaust ein af mest áberandi persónum 9. áratugarins í tónlistarbransanum.
Það þekkja allir ljósa aflitaða hárið, rámu röddina og glottið sem hann var alltaf með á andlitinu. En hann vann fyrir þessu öllu.
Hann flytur frá Bretlandi til Bandaríkjanna með ekkert í höndunum annað en drauminn um að öðlast frægð og frama sem tónlistarmaður og það tókst honum svo sannarlega. Hann var réttur maður á réttum stað á réttum tíma og ásamt útlitinu og grípandi pop/rock lögunum þá var engin furða að MTV tækju honum opnum örmum