Hlaðvarp Minningar.is
Í hlaðvarpi Minningar.is spjallar Sirrý Arnardóttir við fólk um þjóðþekkta einstaklinga sem hafa látist, til að heiðra minningu þeirra. Minningin lifir.
Hlaðvarp Minningar.is
Jón Sigurbjörnsson - Minningin lifir
•
Minningar - Hlaðvarp
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í sjöunda þætti hlaðvarpsins talar Sirrý við Láru Jónsdóttur sem minnist föður síns, Jóns Sigurbjörnssonar, leikara, leikstjóra og óperusöngvara.
Jón ólst upp í Borgarfirðinum, var vænn og ljúfur listamaður sem hafði mikla ástríðu hvað varðar leik og söng. Hann lærði leiklist í New York og lærði söng á Ítalíu sem þótti nokkuð merkilegt á þessum tíma. Að auki stundaði hann hestamennsku af miklum móð. Dóttir hans lýsir honum hér svo fallega sem góðum pabba og afa með mikið jafnaðargeð.