Leikarinn, skemmtikrafturinn og sýningarstjórinn Níels Thibaud Gired mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt móður sinni Helgu Bryndísi Jónsdóttur.
Níels eða Nilli eins og hann er oftast kallaður vakti óvænt athygli á MBL TV 2011 þegar hann mætti í viðtal hjá Birni Braga en í kjölfarið var honum boðið að sjá um sinn eiginn þátt á þeim miðli. Síðan þá hefur Nilli komið víðs vegar við í dagskrárgerð og er nú útskrifaður leikari og einn stjórnenda Stundarinnar okkar ásamt því að vera sýningarstjóri Íslensku Óperunar.
Helga hefur unnið í ferðabransanum til fjölda ára en eiga þau Nilli einstaklega fallegt og náið mæðgina samband og hef ég verið spenntur lengi að fá þau saman til mín í spjall.
Í þættinum ræddum við meðal annars uppvaxtarárin, Frakkland, óperur, sviðsljósið og margt fleira og svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/