Heitt á könnunni með Ása

#33 - Bergdís & Tinna

February 02, 2023 Ási Season 1 Episode 33
#33 - Bergdís & Tinna
Heitt á könnunni með Ása
More Info
Heitt á könnunni með Ása
#33 - Bergdís & Tinna
Feb 02, 2023 Season 1 Episode 33
Ási

Leikkonurnar og vinkonurnar Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall og var að sjálfsögðu rjúkandi heitt á könnunni.
Bergdís og Tinna útskrifuðust báðar frá leiklistarskólanum Rose Bruford í Englandi en voru þó ekki á sama tíma í námi og kynntust ekki fyrr en nokkru eftir að þær útskrifuðust þegar Tinna mætti til Bergdísar í prufu fyrir leikrit sem Bergdís var að setja upp með leikhópnum Spindrift. Tinna stóð sig það vel í prufunum að hún var ekki bara tekin inn í leikritið heldur er hún í dag fullgildur meðlimur hópsins og eru þær einmitt um þessar mundir að standa fyrir sýningunni Ástin er taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett sem sýnd er í Mengni.
Í þættinum ræddum við meðal annars um listina og hvar áhugi þeirra kviknaði á leiklist, leikhópinn Spindrift sem er norrænn leikhópur, ferðalögin milli landa og margt fleira og svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.

Þátturinn er í boði:

Smitten - https://smittendating.com/

Show Notes