Umræðan

Verðbólga þokast niður og vextir lækka

Landsbankinn

Verðbólga hefur hjaðnað á síðustu mánuðum og vextir þokast niður á við. Viðnámsþróttur hagkerfisins virðist samt þó nokkur og segja má að hagkerfið stefni í átt að mjúkri lendingu. Óvissa í heimshagkerfinu hefur þó magnast á síðustu vikum og Ísland er í viðkvæmri stöðu gagnvart hnökrum á alþjóðaviðskiptum.

Hagfræðingar greiningardeildar bankans stikla á stóru um efnahagsmál í nýjasta þætti Umræðunnar.