Strákarnir þurftu að kveðja tímabilið sem kláraðist aldrei. Þeir gera það með því að fara yfir sviðið í þjálfaramálum á Íslandi og þær sviptingar sem hafa orðið undanfarna daga.
Þá var farið til baka um 14 ár og litið aftur á oddaleik Keflavíkur og Skallagríms í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik árið 2006. Bræður börðust og annar þáttastjórnandinn sat á bekk Skallagríms á meðan hinn sat líklega sveittur við að klára ritgerð í sagnfræði við Háskóla Íslands. Er þetta stærsta stund í sögu karlakörfunnar í Borgarnesi?
Leikinn er hægt að nálgast hér: https://www.youtube.com/watch?v=6q5DpnUd5_U&t=181s