
Íslenski Draumurinn
Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum, viðskiptamönnum og einstaklingum sem hafa þorað að elta sína drauma og hafa náð langt á sínu sviði. Við förum yfir þeirra sögu, velgengnina og mistökin. Meira um hlaðvarpið inn á www.islenskidraumurinn.is
Íslenski Draumurinn
32. Ivan Svan Corvasce - Kokteilaskólinn, Reykjavík Cocktails, Spritz & Heimabarinn
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Ivan Svan Corvasce, stofnanda Kokteilaskólans, RVK Cocktails, Vínskólans og eiganda Spritz Venue. Ivan hefur á síðustu árum byggt upp öflugt fyrirtæki í kringum kokteilamenningu á Íslandi og hefur með elju og ástríðu breytt því hvernig fræðsla, þjónusta og upplifun tengd kokteilum er háttað hér á landi. Hann er einnig höfundur bókarinnar Heimabarinn, sem gefur lesendum innsýn í kokteilagerð og veitir verkfærin til að búa til fyrsta flokks drykki heima fyrir.
Skráðu þig á póstlistann og lestu meira um þáttinn á islenskidraumurinn.is