
Íslenski Draumurinn
Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum, viðskiptamönnum og einstaklingum sem hafa þorað að elta sína drauma og hafa náð langt á sínu sviði. Við förum yfir þeirra sögu, velgengnina og mistökin. Meira um hlaðvarpið inn á www.islenskidraumurinn.is
Íslenski Draumurinn
33. Guðjón Már Guðjónsson - OZ
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við einn af mest áhrifamestu frumkvöðlum Íslands, Guðjón Má Guðjónsson. Guðjón hefur verið á fullu í nýsköpunarheiminum síðan hann var aðeins 14 ára gamall og hefur á ferli sínum stofnað og byggt upp mörg af stærstu tæknifyrirtækjum landsins. Hann hefur unnið á fjölbreyttum sviðum – allt frá fjarskiptum yfir í gervigreind og útvarpslausnir fyrir íþróttir.
Í viðtalinu segir Guðjón frá ferli sínum, áskorunum og stórum sigrum – frá fyrstu skrefunum í forritun, stofnun fyrstu fyrirtækjanna, til risavaxinna verkefna eins og Nova, OZ Sports og Overtune. Hann veitir einstaka innsýn í hugsun sína, hvernig hann nálgast tækifæri og hvernig hann hefur alltaf verið lausnamiðaður í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.
Skráðu þig á póstlistann og lestu meira um Guðjón á islenskidraumurinn.is