
Íslenski Draumurinn
Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum, viðskiptamönnum og einstaklingum sem hafa þorað að elta sína drauma og hafa náð langt á sínu sviði. Við förum yfir þeirra sögu, velgengnina og mistökin. Meira um hlaðvarpið inn á www.islenskidraumurinn.is
Íslenski Draumurinn
37. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 1
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er fyrsti partur samtals Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum.
Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is