
Íslenski Draumurinn
Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum, viðskiptamönnum og einstaklingum sem hafa þorað að elta sína drauma og hafa náð langt á sínu sviði. Við förum yfir þeirra sögu, velgengnina og mistökin. Meira um hlaðvarpið inn á www.islenskidraumurinn.is
Íslenski Draumurinn
39. Jónas Karl - Markmiðaþáttur - Ertu á réttri leið?
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins býður Sigurður upp á sérstaka útgáfu sem tengist markmiðasetningu – grunnstoð allra þeirra sem vilja ná árangri, hvort sem er í lífinu eða í viðskiptum.
Þátturinn er framhald af fyrsta markmiðaþætti ársins og nú fer Sigurður dýpra í efnið með tilkomu nýs markmiðaheftis sem allir geta nálgast frítt á islenskidraumurinn.is. Í heftinu má finna skýrar spurningar, lista og verkfæri sem hjálpa þér að setja þér markviss og framkvæmanleg markmið – og komast alla leið.
Gestur þáttarins er Jónas Karl Jónasson, starfsmaður Deluxe Iceland, en hann deilir sinni reynslu af því hvernig markviss markmiðasetning hefur gjörbreytt lífi hans. Jónas starfar sem leiðsögumaður en hefur á síðustu árum lagt mikla áherslu á að vinna markvisst að eigin draumum og markmiðum – með frábærum árangri.