Tvær á floti
Tvær á floti er hlaðvarp fyrir konur yfir þrítugt sem halda mörgum boltum á lofti en vilja gefa sér meira rými og tíma til að rækta sjálfa sig, finna jafnvægi og njóta lífsins.
Í hlaðvarpinu taka þáttastjórnendur samtalið á opinskáan og einlægan hátt og deila eigin reynslusögum. Í framhaldi verður leitað til sérfræðinga þar sem kafað verður dýpra í það sem skiptir máli. Markmiðið er að hlustendur fái innblástur, hvatningu og verkfæri til að fljóta í gegnum lífið.
Instagram: @tvaerafloti
TikTok: @tvaerafloti
Tvær á floti
S01 E15 - Lykillinn að ánægju í lífi og starfi
Í þessum þætti ræða Fanney og Sara við Ragnheiði, mannauðssérfræðing og markþjálfa hjá Lóu markþjálfun. Við förum dýpra ofan í það hvernig við setjum okkur raunhæf markmið, mikilvægi þess að lifa í núinu og að vera þakklát fyrir það sem við eigum og höfum akkúrat núna. Ragnheiður fer einnig yfir starfsánægju, starfsumhverfi og hvernig við getum stuðlað betur að því að líða vel í lífi og starfi. Fróðlegt og hvetjandi spjall sem allir ættu að hlusta á!
Þátturinn er í boði:
- Eldum Rétt
- NÚTRÍ Health Bar
- VILA Iceland
- HÚÐIN skin clinic