Biskupsmálið

4. þáttur

Gabríela Bryndís Ernudóttir Episode 4

Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.

0:00 | 1:07:13

Í þættinum er sjónum beint að þeirri vegferð sem hófst þegar Guðrún Ebba, dóttir biskups, fór í áfengismeðferð árið 2003 og minningar um kynferðisofbeldi föður hennar fóru að brjótast fram eftir áratuga bælingu.

Fjallað er um hvernig kynferðisofbeldi í æsku getur haft djúpstæð áhrif á líf þolenda síðar meir, meðal annars á sjálfsmynd, mörk, tengsl og bjargráð. Guðrún Ebba segir frá því hvernig hún glímdi við áfengisvanda, vinnufíkn, átröskun og sjálfsskaða á sama tíma og hún bar með sér leyndarmál úr æsku. Guðrún Ebba greinir í þættinum frá ýmsum atvikum þar sem Ólafur Skúlason, faðir hennar, var óheiðarlegur, og hvernig sú fyrirmynd hafði áhrif á hana sjálfa. 

Viðbrögð fjölskyldu Guðrúnar Ebbu við frásögn hennar af ofbeldinu leiddu til djúps ágreinings innan fjölskyldunnar sem endaði með fjölskylduslitum. Þátturinn fjallar einnig um það hvernig Guðrún Ebba reyndi að fá kirkjuna til að bregðast við ásökunum á hendur föður sínum eftir andlát hans árið 2008. Hún sendi biskupi bréf þar sem hún lýsti reynslu sinni og krafðist uppgjörs innan kirkjunnar, auk afsökunarbeiðni og sanngirnisbóta til handa þolendum.

Í framhaldinu stigu fleiri konur fram með frásagnir af kynferðisofbeldi og áreitni af hálfu Ólafs Skúlasonar. Þjóðkirkjan skipaði sérstaka rannsóknarnefnd sem skilaði skýrslu árið 2011 þar sem kom fram að viðbrögð kirkjunnar við ásökunum hefðu verið ófullnægjandi og að stofnunin hefði brugðist konunum.

Í þættinum heyrum við frásögn Ólafar Sigríðar Björnsdóttur, sem segir frá reynslu systur sinnar af ofbeldi Ólafs gegn henni. Systir hennar, Hildur Björnsdóttir, lést fyrir tveimur árum og treysti sér aldrei til að segja frá ofbeldinu.  

Þættirnir koma út vikulega, á sunnudögum. 

Umsjón: Gabríela Bryndís Ernudóttir.

Fréttaefni fengið frá Rúv.