Fjölskyldan ehf.

Má bjóða þér lítinn eða stóran æfingabita?

May 16, 2021 Margrét Pála og Móey Pála Season 1 Episode 52
Fjölskyldan ehf.
Má bjóða þér lítinn eða stóran æfingabita?
Show Notes

Kynnir þáttanna, hún Katla, er spennt að fara í sauðburð í Laxárdal og fylgjast með lífinu í sveitinni. Hlustendur fá tóndæmi úr fjárhúsunum.

Ömmgurnar Magga Pála og Móey Pála spjalla um mataræði barna og hvernig sektarkennd foreldra getur tengst því.

Það er þrennt sem börn gera að ágreiningsefni við foreldra sína um leið og þau geta en það er matur, svefn og fatnaður. Gullna reglan er að muna að börn eru eins ólík og þau eru mörg og það verður að hafa í huga í uppeldi.  Eins að sýna ákvörðunum foreldra virðingu og skilning varðandi þeirra skoðanir um t.d. næringu barna eins og lengd brjóstagjafa, sykur og sælgætisát og svo framvegis.

Einnig ber að hafa í huga góða siði varðandi matmálstíma eins og það að taka æfingabita og smakka mat, að setjast niður við matarborðið með fjölskyldunni og sitja meðan aðrir borða. Jákvæð matarupplifun er mikilvæg rétt eins og það er mikilvægt að líkaminn þekki seddu- og hungurtilfinningu.

Fjölskyldan ehf á facebook

Fjölskyldan ehf á Instagram

Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com



Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.


Fjölskyldan ehf á facebook

Fjölskyldan ehf á Instagram

Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com