Fjölskyldan ehf.
Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynnast því og fylgja meðgöngu Móeyjar og öllu sem fylgir þessu hamingjuríka og í senn krefjandi hlutverki; foreldrahlutverkinu! Margrét Pála, eða Magga Pála eins og hún er landsmönnum kunn, er frumkvöðull í menntamálum á Íslandi, höfundur Hjallastefnunnar og ötull talsmaður barna. Hún brennur fyrir uppeldi sem og Móey Pála, dótturdóttir hennar, en hún er uppeldis- og menntunarfræðingur.Tónlistarstef þáttarins er eftir Valgeir Guðjónsson og þættirnir eru teknir upp í stúdíó Lubba Peace undir stjórn Inga Þórs Ingibergssonar.
Episodes
63 episodes
Ný sería fer af stað, fleiri börn, meiri ást, meiri þreyta og flutningar!
Fjölskyldan ehf. er mætt á ný, reynslunni og einu barni ríkari! Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um ólík og fjölbreytt verkefni fjölskyldunnar eins og t.d. flutninga og fjölskyldureit. Það er ekkert sem er fjölskyldunni óviðkomandi og fa...
Í fréttum er það helst
Nú eru tvö ár liðin frá síðustu þáttaseríu og þess vegna margt að frétta hjá Fjölskyldunni ehf., hænum og öllum. Magga Pála er iðin að vanda; uppbygging á heimili og fyrirtæki en henni finnst það nú ekki tiltökumál. Móey Pála er ekki síður iðin...
Björkin fæðingarheimili
Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rut Guðmundsdóttir eru ljósmæður í Björkinni fæðingarheimili og viðmælendur Möggu Pálu og Móeyar Pálu að þessu sinni. Hrafnhildur og Arney Þórarinsdóttir stofnuðu Björkina árið 2017 en þær hafa sterka og skýra sýn ...
Hávaði, heyrn, heyrnarleysi og tungumál
Doktor Valdís Jónsdóttir spjallar við Möggu Pálu í þessum þætti og það er hávaði sem þær hefja samtalið á. Þær sjálfar eru ekki með hávaða en Valdís hefur rannsakað hávaða og hvaða áhrif hann hefur á heyrn, börn, kennara og svo framvegis.
Svarthvíta regnbogafjölskyldan
Móey Pála og Júlíana Dögg, mágkona hennar, ákváðu með stuttum fyrirvara að taka upp þátt. Tilefnið var því miður ekki gleðilegt en David, maki Móeyar, lenti í leiðindaatviki í sundi á dögunum. Þar fékk hann að finna fyrir fordómum vegna húðlita...
,,Í skólanum mínum er síminn bara í körfunni"
Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þrá...
Nýtt líf kviknar
Magga Pála er að verða LANGamma! Hún fékk elsta barnabarnið, tilvonandi móðurina með sér í hlaðvarpsgerð. Hér í fyrsta þætti spjalla þær um heimsbyltinguna og hamingjuna sem fylgir hverju nýju barni, um Fjölskylduna ehf, verkaskiptingu á heimil...
Fjölskyldan á dögum Kórónuveirunnar
Fleiri fjölskyldumeðlimir taka til máls með MP-unum um Kórónaveiruna. Mamman með börnin fimm lýsir ástandinu á heimilinu í sóttkví. Sú 14 ára hefur áhyggjur af eldra fólkinu í fjölskyldunni en þeirri 7 ára þykir veiran ekki bara neikvæð.
Uppeldið fyrstu mánuðina
MP-in hugleiða tilveruna eftir að barnið mun fæðast. Þarf barnið sér herbergi, hvað með hjálpartæki eins og snuddu og pela? Á alltaf að bregðast við gráti ungbarna og á fólk að skipta sér af annarra manna börnum?
Gildi reglunnar í óvissum heimi
Nú spjalla MP-in um röð, reglu og rútínu í uppeldin. Þar á meðal er samræming innan fjölskyldu, hlusta afi og amma á ungu foreldrana? Og hvað með kyn barnsins, skiptir það einhverju máli?
Er það strákur eða stelpa?
Tilvonandi foreldrar ákveða hvort þeir vilja vita um kyn barnsins og hvort og hvernig eigi að láta aðra vita af kyninu. Af hverju skiptir þetta svona óskaplega miklu máli, hvernig er staðan með gömlu kynhlutverkin og hvað með fleiri kyn en bara...
Forsetar og fótamissir
Ungabörn eru svo ógn viðkvæm og bjargarlaus og viðkvæmnin fer ekkert frá þeim þótt árunum fjölgi. Þess vegna er erfitt að hafa marga forseta í skólanum og smáræðis áfall í samskiptum getur haft meiri áhrif en við fullorðna fólkið áttum okkur á....
Amman úr felum og blönduð börn
Amman kemur úr felum með framtíðarplönin, tilvonandi foreldrar deila reynslu og upplifun af ólíkum bakgrunni og hvernig pabbinn upplifir sig öruggari á Íslandi en í lögregluríkinu USA. Loks velta hjónakornin því fyrir sér hvernig verður að eign...
Vöndum valið á orðunum okkar
Stækkandi bumba og þreyta gerir vart við sig hjá verðandi móður en verður hún ekki að harka af sér og vinna fram á síðasta dag? Amman deilir smíðareynslu og loks missa þær sig í umræðu um mátt og vald tugumálsins og orðanna sem við veljum að no...
ÞAÐ MÁ RUGLAST Í HEGÐUN
Grundvallarfærni á fyrstu æviárunum er að læra að ganga, að tala - og haga sér vel í samskiptum. Allt þetta lærist af góðum fyrirmyndum, stuðningi, hvatningu og eftirfylgd - en hegðunarþjálfunin gleymist. Hvernig eru aðstæður fyrir hegðunarþjál...
Eru tilfinningar stjörnur í geimnum?
Nú tekur hin 7 ára Katla við af stóru systur sinni sem uppeldislegur ráðgjafi í umræðu um tilfinningar. Eru ekki allar tilfinningar í boði? Og eru börn ekki jafn frábær þótt þau séu ekki alltaf glöð? Og hvað er til ráða hjá 7 ára ungmenni sem t...
Er ADHD fólk alltaf úti að aka?
Tvær systur og amma mættu á gullvagninum í stúdíóið - raunverulega úti að aka, nokkuð sem þær þekkja vel innan sinnar ADHD fjölskyldu. Þær trúa hlustendum fyrir vandræðalegum augnablikum í hvatvísi sinni og mótstöðuþrjóskuröskun og einhverfuróf...
Fjórhjólaferð og bumbuboð fyrir fæðingu
6 vikur þar til nýja barnið fæðist og tilvonandi móðir þrjóskast við í fullri vinnu. Amman snýr aftur úr sumarfríi eftir rúmlega tveggja vikna fjör fyrir norðan, lengsta sumarfrí hennar í 20 ár. “Baby Shower” er framundan og hvað á það fyrirbær...
Mikilvægt frí eða myglað í sófanum
Verslunarmannahelgi og sumarfrí enn í algleymingi, ekki öllum til jafn mikillar gleði og hamingju. Sumir fylgja fyrirmælum ríkisstjórnarinnar og ferðast um landið, aðrir eru að vinna og enn aðrir ,,mygla" í sófanum. Góður gestur kemur í þáttinn...
Sjáðu barnið, ekki símann!
Hvaða foreldri á það ekki til að gleyma sér í símanum? Börn eiga að vera litlir athyglisrukkarar sem berja á símadyrnar þegar þau finna að foreldrar hverfa inn í annan heim og hafa þar með yfirgefið þau. Munið að hamingjan á heimilinu og gæði p...
Áramót í aðsigi
Hin dásamlega óregla sumarfrísins er nú víkjandi rétt eins og björtu næturnar. Nú þarf röð, reglu og rútínu til að öllum börnum takist sem best til í opinbera lífinu í leik- og grunnskólum. Fjölskyldan og skólarnir bera ábyrgð á að byggja upp ö...
Ástfangin enn á ný
Barnið er fætt! Það þýðir að Magga Pála er orðin langamma og Móey Pála er orðin mamma. Magga Pála segir frá fæðingu dóttur sinnar, þá elstu dóttur hennar og loks nýfædda barninu. Hvað er líkt með öllum þessum fæðingum? Hvað er ólíkt?Einnig ...
Yngst og best á bænum
Ömmgurnar þrjár, Magga Pála, Móey Pála og sú nýfædda, komu í hljóðver ásamt föðurnum nýbakaða honum David. Foreldrarnir segja hlustendum fæðingarsöguna og hvaða tilfinningar bærðust innra með þeim. Einnig ræða þau hvernig lífið er núna með nýju...
Kemur pósturinn nokkuð með börnin?
Magga Pála, Móey Pála og sú litla spjalla saman í hljóðveri. Þær ræða tilfinningatengsl, vinnuna að vera í fæðingarorlofi og hvernig lífið aðlagast nýjum einstaklingi. Magga Pála segir tilfinningaþrungna sögu af rofnum tilfinningatengslum, hver...
Erum við ekki öll frá sömu plánetunni?
Fjórar kynslóðir sátu saman í hljóðveri og ræddu hvernig síprjónandi nýbökuð amma upplifir sitt hlutverk. Þær ræddu einnig eitthvað sem er alveg nýtt í fjölskyldunni: spennuna yfir því hvernig litla stúlkan verður á litinn. Þarf að tala um ólík...