Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Líkindi og happdrætti - Pawel Bartozek
Pawel Bartozek fæddist í Póllandi og flutti til Íslands 8 ára gamall.
Hann er stærðfræðingur sem hefur látið samfélagsmál til sín taka. En hann hefur ritað pistla á vefinn í fjölmiðla reglulega undanfarin 20 ár. Pawel er jafnframt borgarfulltrúi.
Í þessu viðtali ræðir Pawel um æsku sína í Póllandi og kommúnismann sem þar var yfir öllu. Vandamál þar var ekki skortur á peningunum heldur skortur á vörum.
Einnig fáum við Pawel til að ræða líkindi og happdrætti. Borgar sig t.d að taka þátt í Lottó eða öðrum happdrættum?
- Vissir þú að líkur á að vinna í Lottó eru 1 á móti 680.000.
- Ef þú spilar Lottó t.d vikulega í 50 ár þá eru líkurnar orðnar um helmingur.
- Þeir sem spila mikið auka að sjálfsögðu líkur sínar.
- Ef þú spilar fyrir 25 þúsund kr. á viku í 50 ár þá fara í þetta 60 milljónir kr.
- Hvenær á maður að taka þátt?
- Pawel segir betra að taka þátt þegar pottarnir eru tvöfaldir eða þrefaldir.
- Fólk áttar sig á þessu því fleiri taki þátt þegar pottarnir eru stærri.
- Af hverju er fólk frekar til í að taka þátt í happdrætti en að kaupa hlutabréf.
- Líkindi og hvernig við metum þau.
- Svindl í happdrættum.
- Hvernig Pawel nálgast sjálfur fjármál.
Þetta og margt fleira um líkindi og happdrætti í þessu áhugaverða viðtali.
Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson.
Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.