Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Hvað eru rafmyntir? - Kristján Ingi Mikaelsson
Kristján Ingi Mikaelsson er frumkvöðull og introvert að eigin sögn og fór fljótt í að vinna í tölvum. Hann varð fljótlega var við áhuga við að fara í eigin rekstur. Þegar hann var kominn í nám í Versló var hann kominn á fullt í eigin rekstur samhliða.
Hann fór að vinna við gerð appa hjá Stokk á upphafsárum þeirra hér á landi. Hann fór svo að vinna hjá Green Cloud sem varð svo keypt af Netapp.com. Hann stofnaði fyrirtæki með félögum sínum og var haldið í Kísildalinn í Kaliforníu að leita að fjárfestum. Eftir það ævintýri fór hann í að stofna rafmyntarráð ásamt fleirum og starfaði þar sem framkvæmdastjóri.
Hann vinnur í dag við sprotafyrirtækið Fractal 5 sem safnaði 370 milljónum króna úr sjóðum úr Kísildalnum. Þar eru þau að búa til nýja vöru sem ekki hefur sést áður.
Í þessu viðtali ræðum við eftirfarandi m.a:
- Sögu rafmynta.
- Hvernig hann kynnist Bitcoin árið 2013.
- Hann kaupir sitt fyrsta Bitcoin 2013 þrátt fyrir gjaldeyrishöft með miklu veseni.
- Hvað eru rafmyntir og bálkakeðjur í rafmyntum.
- Hvernig getum við hámarkað peningana okkar þannig að þeir haldi virði sínu.
- Þetta og miklu meira um rafmyntir.
Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson.
Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðning frá félagsmálaráðuneytinu.