Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Fyrirtækið þú, skattar, rekstur og stofnun fyrirtækja - Árni Þór Hlynsson
•
Umboðsmaður skuldara
•
Episode 38
Árni Þór Hlynsson er framkvæmdastjóri Skatts og bókhalds sem sér um bókhald og reikningsskil fyrirtækja. Hann hefur unnið við fyrirtækjaráðgjöf varðandi rekstur, bókhald og skattamál í áratugi.
Hann ræðir í þessu viðtali allt það sem viðkemur rekstri einstaklinga og fyrirtækja. Við ræðum í þessu viðtali meðal annars.
Hvort Íslendingar séu skattafælnir?
- Hvað þarf maður að gera ef maður vill fara að vinna í bókhaldi eða endurskoðun?
- Hvenær þarf maður að fara að stofna til rekstur t.d ef maður er að afla tekna til hliðar?
- Hvenær leggur maður virðisaukaskatt á tekjur sínar?
- Hvað þýðir það að vera með rekstur á eigin kennitölu?
- Skattaprósentur á rekstur fyrirtækja samanborið við skatt á einstaklinga.
- Hvað kostar að stofna fyrirtæki?
- Hvenær á maður að stofna fyrirtæki um reksturinn?
- Hvernig skatturinn hefur í dag breyst í þjónustustofnun sem vill hjálpa fólki.
- Ábyrgð við rekstur á eigin kennitölu og fyrirtækjareksturs.
- Hver er munurinn á eftirfarandi félagaformum, EHF, HF, SLF SLHF og SF?
- Mismunandi arðgreiðslur og ábyrgð úr ólíkum félagaformum?
- Launatengd gjöld hver eru þau?
- Hvað á maður að greiða sér há laun í rekstri?
- Hvaða mistök Árni sér fólk gera við rekstur og stofnun fyrirtækja?
- Hvað er kennitöluflakk?
- Hverju Árni myndi breyta í íslenskum skattalögum.
Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson.
Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.