Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Hvað kostar að eignast barn? Hlynur Hauksson
•
Umboðsmaður skuldara
•
Episode 39
Hlynur Hauksson starfar sem viðskiptastjóri hjá Meniga. Meniga ákvað að skoða hvað það kostar að eignast barn fyrir Leitina að peningunum.
- Hvaða áhrif hefur fæðingarorlof á tekjur á meðan á orlofi stendur og hver eru áhrifin á framtíðartekjur?
- Hvar eru íslenskir foreldrar að eyða mest þegar þeir fara í fæðingarorlof?
- Hver er startkostnaður við að eignast barn?
- Er þessi markaðir þjakaður af miklum gerviþörfum?
- Hver er eyðslan á íslenskum barnavörumarkaði?
Þetta og margt fleira í þessu áhugaverða viðtali.
Umsjón Gunnar Dofri Ólafsson
Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.