Leitin að peningunum

Að kaupa notaðar vörur - Ruth Einarsdóttir

July 20, 2021 Umboðsmaður skuldara Episode 42
Leitin að peningunum
Að kaupa notaðar vörur - Ruth Einarsdóttir
Show Notes

Ruth Einarsdóttir starfar sem rekstrarstjóri nytjamarkaðs SORPU Góða hirðinn.  En Góði hirðirinn skilar öllum hagnaði til góðgerðarmála.  Ruth hefur lengst af starfað í verslun og í fatageiranum þangað til hún tók við Góða hirðinum fyrir þremur árum síðan sem aðallega selur húsmuni og húsgögn. 
Í þessu viðtali ræðum m.a: 

  • Hvernig umhverfið fyrir sölu á notuðum vörum hefur breyst á nokkrum árum 
  • Mikil aukning í endurnýtingu á húsbúnaði og fötum 
  • Fatnað og umhverfisáhrif á tísku þar sem föt hafa enst stutt 
  • Hvort það sé betra að kaupa dýran fatnað en ódýran? 
  • Markaði með notuð föt og áhrif þeirra á umhverfið 
  • Hvað verður um þau þúsundir tonna af fötum sem berast til SORPU
  • Sögu Góða hirðisins hjá SORPU og vaxandi umfang þess 
  • Hversu hátt hlutfall alls þess sem berst í nytjagáma er selt aftur 
  •  Að fyrir innan 100 þúsund krónur er hægt að kaupa nánast allt til heimilisins hjá Góða hirðinum 


Þetta og margt fleira í þessu áhugaverða viðtali
Umsjón Gunnar Dofri Ólafsson
Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu