Leitin að peningunum

Borgar menntun sig og fleira forvitnilegt - Konráð S. Guðjónson

Umboðsmaður skuldara Episode 44

Konráð er hagfræðingur og starfar sem aðstoðar framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.  Konráð hefur velt fyrir sér hinum ýmsu málum samfélagsins og deilir þeim reglulega á Twitter.   
Í þessu viðtali ræðum við. 

  • Borgar menntun sig? 
  • Hvaða menntun skilar mestum tekjum?
  • Muninn á tekjum háskólamenntaðra og þeirra sem aðeins eru með grunnmenntun. 
  • Af hverju er tekjujöfnun há hér á landi? 
  • Af hverju er svona mikil áhersla á að allir fari í háskólanám? 
  • Námslán á maður að taka þau? 
  • Hvað skapar háar tekjur? 
  • Er erfiðara fyrir háskólamenntaða að fá störf við hæfi? 
  • Hagfræði og sálfræði og samspil þessara greina. 
  • Hótel og hjólhýsi, er skynsamlegra að leigja sér hótelherbergi nokkrum sinnum yfir sumarið frekar en að fjárfesta í hjólhýsi? 
  • Verðtryggð lán - hvað þarf til þess að borgi sig og af hverju á að sleppa þeim?  
  • Verðbólguvæntingar og áhrif þeirra.  
  • Hvað er að gerast á húsnæðismarkaði?  


Twittersíða Konráðs 

Leitin að peningunum er framleidd af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.