Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Hvað er eiginlega að gerast á húsnæðismarkaði? - Páll Pálsson
•
Umboðsmaður skuldara
•
Episode 47
Páll Pálsson er fasteignasali með fimmtán ára reynslu og kemur nú sem viðmælandi í Leitina að peningunum í annað sinn. Meginumfjöllunarefni þáttarins er staðan á húsnæðismarkaði um þessar mundir, sem einkennist af litlu framboði og mikilli eftirspurn eftir húsnæði.
Þar fyrir utan ræðum við:
- Hvaða þýðingu það hefur að fyrirvarar við tilboð í fasteignaviðskiptum séu til vandræða fyrir kaupendur
- Hvaða hverfi eiga mesta hækkun inni miðað við önnur á höfuðborgarsvæðinu
- Stöðuna eftir vaxtahækkun Seðlabankans
- Muninn á leyndum galla og földum galla í fasteignaviðskiptum
- Mikilvægi þess að skoða húsnæði mjög vel eftir afhendingu
- Hvernig fasteignasalar markaðssetja sig
- Hvort fasteignasalar geti raunverulega gætt hagsmuna bæði kaupenda og seljenda
Og margt, margt fleira.
Leitin að peningunum er framleidd af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.