Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Gjaldþrot og greiðsluerfiðleikar - Lovísa Ósk Þrastardóttir
•
Umboðsmaður skuldara
•
Episode 48
Lovísa Ósk Þrastardóttir starfar sem yfirlögfræðingur hjá Umboðmanni skuldara. Hún þekki mjög vel fjárhagserfiðleika einstaklinga og afleiðingar þeirra.
Í þessum þætti ræðum við því erfiðleika þegar kemur að fjármálum
- Hvað gerir Umboðsmaður skuldara?
- Hvernig er staðan í dag þegar kemur að greiðsluerfiðleikum?
- Hvað einkennir hópinn sem leitar til Umboðsmanns skuldara.
- Hvað er greiðsluaðlögun og hvernig fer slíkt ferli fram?
- Hvaða forsendur geta orðið til þess að fólk fær ekki greiðsluaðlögun.
- Hvað þýðir það að verða gjaldþrota?
- Hvenær falla kröfur niður eftir gjaldþrot og hvað getur breytt því?
- Hver eru langtímaáhrif gjaldþrots og greiðsluaðlögunar?
Þetta og margt annað í þessu viðtali.
Leitin að peningunum er framleidd af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.