Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Samgöngur eru þriðji stærsti útgjaldaliðurinn - Þorsteinn Hermannsson
Þorsteinn Hermannsson er samgöngustjóri Reykjavíkur en er nú í tímabundnu starfi hjá Betri samgöngum. Samgöngur eru mjög stór þáttur við rekstur heimila og er áætlað að þau séu í dag þriðji stærsti útgjaldaliðurinn á eftir húsnæði og matarinnkaupum. Kostnaður við rekstur bíls er áætlaður um 120 þúsund á mánuði. Betri samgöngur eru með stór áform um uppbyggingu almenningssamgangna með Borgarlínu, hjóla- og göngustíga auk uppbyggingar á vegakerfinu.
Því skoðum við hér hvort hægt verði að minnka kostnað við samgöngur sleppa bíl, hjóla eða ganga í þessu áhugaverða viðtali.
Framleitt af Umboðsmanna skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.