Til skjalanna

Vald hinna veiku

Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands

Unnar Ingvarsson fagstjóri á Þjóðskjalasafni ræðir við Guðna Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseta Íslands, um rannsóknir hans á þorskastríðunum og væntanlega bók hans, Vald hinna veiku.

 Útfærsla efnahagslögsögu Íslands á 20. öld  leiddu iðulega til átaka við Breta, sem mótmæltu þeim áformum harðlega. Deilurnar náðu hámarki þegar kom til átaka á fiskimiðunum sjálfum, þar sem togvíraklippurnar voru notaðar í fyrsta sinn. 

 Í viðtalinu fjallar Guðni meðal annars um innanlandspólitíkina á þessum umbrotatímum, átökin við Breta á miðunum og hönnun og notkun hinna leynilegu togvíraklippa sem komu breskum stjórnvöldum í opna skjöldu. Hann dregur jafnframt fram aukna áherslu á rétt strandríkja til að ráða yfir miðum sínum og hvernig samningar reyndust að lokum lykillinn að lausn deilunnar.