180 with Sven
Í þessum podcast þáttum ætlum við Linda og Svenni að fara 180 gráður og leita að upplýsingum og fróðleik um öll heimsins og himinsins málefni, niður í hin myrkustu málefni og hin björtustu því að ekkert er okkur óviðkomandi. Fylgstu með okkur og deildu að vild.Um okkur:Linda er draumóramanneskja sem vill sjá heiminn glimmerstráðan og kærleiksríkan og án vondu nornarinnar sem skemmir öll ævintýrin. Hún elskar að aðstoða einstaklinga sem lífsmarkþjálfi, samskiptaráðgjafi og sem rithöfundur. Svenni er hvatvís ævintýragarpur sem á samt afar fallegt hjarta og vill heiminum allt það besta. Hann klífur fjöll og fer um öll fyrnindi landsins og víðar að Víkingahætti en sest svo niður stöku sinnum og fær til sín ýmsa aðila sem hafa frá einhverju að segja sem skiptir máli að heyra.
Episodes
41 episodes
#41 Svenni Hringir í Lindu
Við erum að fara af stað aftur með Þættina okkar eftir Sumar frí og Svenni hringir í Lindu og tekur spjall við hana. Linda veitt ekki í byrjun að Svenni er að að taka upp Þátt Framleiðandi- Sveinn Snorri Sighvatsson
#40 Þunglyndi
Í þessum þætti skoðum við nokkur einkenni þunglyndis sem geta leynt á sér og skoðum hvað hægt sé að gera til að ná sér upp úr því.Framleiðandi- Sveinn Snorri SighvatssonÞáttastjórnendur- Sveinn Snorri Sighvatsson/Linda Baldvins
#39 Allt og ekkert
Allt og ekkert Í þessum þætti fjalla Svenni og Linda um allt og ekkert, málefni nútímans og gerendameðvirkar kerlingar.Framleiðandi- Sveinn Snorri SighvatssonÞáttastjórnendur- Sveinn Snorri Sighvatsson/Linda BaldvinsUp...
#38 Er ástin eitthvað meira en efnahvörf?
Hér spjöllum við um ástina frá öllum hliðum. Er ástin efnahvörf eða þurfum við að hafa eitthvað fyrir henni? Eru glansmyndirnar að brengla sambönd dagsins í dag og hvaða grunnstoðir þurfum við að hafa í okkar eigin fari til að sambandið geti ge...
#37 Leynist ekki lítill Pútín í okkur öllum?
Við Svenni förum um víðan völl í þessum þætti og tölum um stríð í Evrópu og okkar persónulegu stríð ásamt því að við skoðum hvort að við séum að stuðla að betri heimi í raun og veru eða erum við bara að þykjast?
#36 Hvað þú þarft að vita um réttindi þín eftir sextugt?
Hvað þarftu að vita varðandi kaupmála, erfðaskrá, erfðarétt og réttindi þín eftir sextugt?Elín Sigrún Jónsdóttir hjá buumrett.is svarar þessum spurningum og mörgum öðrum í þessum þættiFramleið...
#35 Lengir hláturinn líf okkar?
Lengir hláturinn líf okkar? Í þessum þætti ætlum við að spjalla um hláturinn og hin margföldu áhrif sem hann getur haft á líf okkar og hamingju að ég tali nú ekki um unglegt útlit sem flestir vilja halda sem lengst í.Ef þig vantar...
#34 Ertu tilfinningalega greind persóna?
Ertu tilfinningalega greind persóna? Í þessum þætti ræðum við um það hvað það er að vera tilfinningagreindur og hvaða tilgangi þjónar það í lífi okkar? Þessum spurningum og fleiri reynum við að svara eftir bestu getu í þessum þætti.Ef þ...
33# Sjálfsvíg-Reynslusögur
Sjálfsvíg-Reynslusögur Hvernig er að missa bestu vini sína, bróður og stjúpson sem ákváðu að binda endi á líf sitt?Hvaða spurningar vakna og hvernig tekst maður á við áföll af slíku tagi? Í þessum þætti bera þau Hanna Hrefnud...
#32 Hún missti hár og neglur á vistheimilinu
Hún missti hár og neglur á vistheimilinu5 ára gömul var Hanna Hrefnudóttir og systir hennar 2ja ára settar í tímabundna vistun vegna erfiðleika móður þeirra eftir skilnað. Vistunin var ekki langt frá Reykjavík eða hjá Þýskri konu í Mosfe...
#31klámáhorf, kynlífsfíkn
Er klámið að rústa kynlífsgetunni og ánægjunni á venjulegu kynlífi?Í þessum þætti ræðum við um rannsóknir sem gerðar hafa verið víða um heim varðandi klámáhorf og samhengi þess við kynlífsfíkn nauðgunarmenningu og virðingarleysi því sem...
30# Hverjum laðast narsisstar helst að?
Hverjum laðast narsisstar helst að? Eða eru einhver persónueinkenni sem eru mest áberandi hjá mökum þeirra? Við fjöllum um þetta málefni í þessum þætti - Ekki missa af þessari umfjöllun!https://www.youtube.com/results?search_query=dr+ra...
#29 Áramótaannáll Svenna og Lindu
Við förum yfir það sem okkur þótti merkilegast á árinu og auðvitað með okkar einstöku skoðanir og álit á öllu mögulegu eins og okkur einum er lagið. Gleðilegt ár og takk fyrir samfylgdina á þessu Guðsvolaða ári 2021 🎉🥳🎊Linda Bal...
#28 Sorgin er staðreynd
Sorgin er staðreynd sem við flest þurfum að takast á við í lífinu en misjafnt er hvernig okkur tekst að takast á við hana.Í þessum þætti tölum við um hinar ýmsu myndir sorgarinnar og leiðir sem við getum nýtt okkur til að takast á við þá ve...
#27 Andvaka í nótt með mikla sorg í hjarta
Er búin að vera andvaka í nótt með mikla sorg í hjarta þar sem morðingi sonar míns er að gefa út bók og lýsir því þegar hann drap son minn. En lýsingin er ekki sönn og þið sem ætlið að lesa þessa bók og styrkja hann þá bendi ég ykkur á að lesa ...
#26 Kvíði
Ertu kvíðinn?Kvíðinn leynist víða og í þessum þætti tölum við um það hvernig Covid ástandið hefur kvíða valdandi áhrif á okkur og við tölum einnig um almennan kvíða og leiðir til að takast á við hann.Ef þig vantar aðstoð við þín líf...
#25 Bók allra Árstíða
Svenni og Linda ræða um bókina “Bók allra Árstíða” sem Linda er höfundur að. Getum við skapað líf okkar? Og hvernig virkar aðlöðunar lögmálið? Spjall um speglun, boðefni og fleira skemmtilegt.
#24 karlmennskuspjallið á Facebook við Dr Shamender Talwar
Nú fórum við Svenni út fyrir þægindarammann okkar og tókum enskuna á þetta í þessum þætti. Ástæðan er sú að við ræddum um karlagrúbbuna karlmennskuspjallið á Facebook við Dr Shamender Talwar félagssálfræðing en hann er iðulega fenginn til að ræ...
#23Gísli Gunnarsson Bachmann stjörnuspeki almennt
Við ræðum í þessum þætti um stöðu himintunglanna og þá orku sem í heiminum er vegna þeirrar stöðu og við ræðum um það hvers má vænta á næstu árum. Einnig ræðum við um stjörnuspeki almennt og Svenni er tekinn og greindur út frá henni.
22#Ingvar Jónsson Ertu gulur, rauður grænn eða blár?
Ingvar Jónsson eigandi Profectus, markþjálfi og rithöfundur ræðir hér um persónugreiningar, starfsemi heilans og margt annað skemmtilegt. Ertu gulur, rauður grænn eða blár?
#21 Meðvirkni er dauðans alvara Partur 2
Meðvirkni er dauðans alvara og hefur mikil áhrif á líf þess sem meðvirkur er. Í næstu 2 þáttum munum við fjalla um meðvirknina og áhrif hennar, ekki missa af!
#20 Meðvirkni er dauðans alvara Partur 1
Meðvirkni er dauðans alvara og hefur mikil áhrif á líf þess sem meðvirkur er. Í næstu 2 þáttum munum við fjalla um meðvirknina og áhrif hennar, ekki missa af!
#19Siggu Kling þekkja flestir Hún er yndisleg
Siggu Kling þekkja flestir en hvaða atburðir lífsins hafa mótað hana mest og hvernig uppgötvaði hún hæfileika sína? Um hvað snýst þessi tilvera okkar að hennar mati og getum við haft stjórn á henni með því einu að segja abrakadabra?...