
180 with Sven
Í þessum podcast þáttum ætlum við Linda og Svenni að fara 180 gráður og leita að upplýsingum og fróðleik um öll heimsins og himinsins málefni, niður í hin myrkustu málefni og hin björtustu því að ekkert er okkur óviðkomandi. Fylgstu með okkur og deildu að vild.Um okkur:Linda er draumóramanneskja sem vill sjá heiminn glimmerstráðan og kærleiksríkan og án vondu nornarinnar sem skemmir öll ævintýrin. Hún elskar að aðstoða einstaklinga sem lífsmarkþjálfi, samskiptaráðgjafi og sem rithöfundur. Svenni er hvatvís ævintýragarpur sem á samt afar fallegt hjarta og vill heiminum allt það besta. Hann klífur fjöll og fer um öll fyrnindi landsins og víðar að Víkingahætti en sest svo niður stöku sinnum og fær til sín ýmsa aðila sem hafa frá einhverju að segja sem skiptir máli að heyra.
180 with Sven
#10 Hvernig er að vera stjúpforeldri Valgerður Halldórsdóttir
Hvernig er að vera stjúpforeldri og hvaða gildrur ber að forðast þegar þú ferð inn í það hlutverk. Áttu að verða „foreldri“ eða einungis „vinur“ barnsins, eða kannski hvoru tveggja. Valgerður Halldórsdóttir hjá
stjuptengsl.is
ræðir við okkur í upplýsandi viðtali sem ekkert stjúpforeldri ætti að missa af.
Framleiðandi- Sveinn Snorri Sighvatsson/ Volume
Þáttastjórn- Sveinn Snorri Sighvatsson/ Linda Baldvins
Upptaka - Volume studio