Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi.Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni.Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi sem er tækniyfirfærslu stofa Íslands í eigu allra Háskólanna, Landsspítalans, Samtaka Iðnaðarins og rannsóknarstofnanna. Frekari upplýsingar á heimasíðunni www.audna.is
Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Marel, Össur og hugverkaverndin
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í tilefni af alþjóðadegi hugverkaverndar - World Intellectual Property day, þann 26. apríl 2021 fáum við Tatjönu Latinovic hugverkastjóra Össurar og Guðmund Þór Reynaldsson hugverkastjóra Marel í heimsókn.
Hugverkadagurinn er að þessu sinni helgaður áhrifum hugverka á rekstur, viðgang og vöxt lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þó hvorki Össur né Marel teljist lítil eða meðalstór fyrirtæki í dag þá voru þau það sannanlega í upphafi. Það er því fróðlegt að fá innsýn inn í hvernig þessi tvö fyrirtæki, sannkölluð krúnudjásn íslensks nýsköpunarumhverfis, líta á hugverkavernd. Við ræðum hugverkastefnu þessara fyrirtækja og hvernig hugverkavernd hefur verið lykilþáttur í að skapa þessum alþjóðlegu risum samkeppnisforskot.
Einnig förum við yfir hvað minni nýsköpunarfyrirtæki geta lært og hvaða áherslu íslenskt samfélag ætti að leggja til að ýta undir jákvæða þróun á þessu sviði. Hvernig nýtum við okkur hugverkavernd til að skapa okkur samkeppnisforskot?
www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is