Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi.Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni.Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi sem er tækniyfirfærslu stofa Íslands í eigu allra Háskólanna, Landsspítalans, Samtaka Iðnaðarins og rannsóknarstofnanna. Frekari upplýsingar á heimasíðunni www.audna.is
Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
X-Nýsköpun, vísindin og við - Lilja Alfreðsdóttir
X-Nýsköpun, Lilja Alfreðsdóttir
Lilja Alfreðsdóttir er gestur okkar í þessum þætti. Hún fer yfir hugmyndir sínar og Framsóknarflokksins um vísindalega nýsköpun og hlutverk hennar í framþróun samfélagsins.
Áttundi þáttur Auðvarpsins er annar þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum. Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.
Hvernig byggjum við upp þekkingasamfélag þar sem við nýtum okkur framþróun í vísindum og rannsóknum samfélaginu til heilla?
Í þessum þætti fer Mennta og Menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir vel yfir sínar áherslur á tækifærunum sem við okkur blasa og hvernig við sem samfélag getum nýtt okkur vísindin og nýsköpun til að grípa þau. Hún fer yfir mikilvægi 4. stoðarinnar, hugverkaiðnaðarins í efnahaglegu tilliti, tækifærin í landbúnaði og fl.
X-Nýsköpun
www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is