Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi.Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni.Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi sem er tækniyfirfærslu stofa Íslands í eigu allra Háskólanna, Landsspítalans, Samtaka Iðnaðarins og rannsóknarstofnanna. Frekari upplýsingar á heimasíðunni www.audna.is
Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
X-Nýsköpun, vísindin og við - Logi Einarsson
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
X-Nýsköpun, Logi Einarsson
Logi Einarsson er gestur okkar í þessum þætti, sem ber undirtitilinn „með Loga“. Hann fer yfir hugmyndir sínar og Samfylkingarinnar um vísindalega nýsköpun og hlutverk hennar í framþróun samfélagsins.
Níundi þáttur Auðvarpsins er þriðji þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum. Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.
Hvernig byggjum við upp þekkingasamfélag þar sem við nýtum okkur framþróun í vísindum og rannsóknum samfélaginu til heilla?
Í þessum þætti fer formaður Samfylkingarinnar, Logi Einarsson vel yfir sínar áherslur á tækifærunum sem við okkur blasa og eins hvers ber að varast. Að við þurfum líka að huga að siðfræðinni og áhrifa þeirra breytinga sem eru samfara framþróun á fólkið í landinu. Hann ræðir um Unuhús, Loka Laufeyjarson og bóndann á Hala.
X-Nýsköpun
www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is