Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi.Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni.Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi sem er tækniyfirfærslu stofa Íslands í eigu allra Háskólanna, Landsspítalans, Samtaka Iðnaðarins og rannsóknarstofnanna. Frekari upplýsingar á heimasíðunni www.audna.is
Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Auðna - Upphafið og framhaldið með Einari Mäntylä
•
Sverrir Geirdal
•
Season 3
•
Episode 31
Af hverju Auðna og af hverju er framtíðin björt?
Einar Mantyla sest með Sverri Geirdal og fer yfir söguna! Báðir eru þeir hættir hjá Auðnu og því vel við hæfi að fara yfir liðinn tíma og rifja upp söguna.
Förum yfir allskonar pælingar um Vísindalega nýsköpun, svarið við öllum spurningum mannkyns (fyrir utan 42).
Auðna hefur þroskast og er komin vel á lappirnar, aukin eftirspurn eftir þjónustunni sýnir þörfina. Mikilvægt að láta ekki staðar numið og tryggja tilveruréttinn landi og þjóð til heilla.
Förum yfir EDIH – hví kom Auðna að því verkefni og hvernig hefur gengið. Eigum við að sækja í Evrópuverkefni þrátt fyrir portalinn, ja þegar stórt er spurt? 27 milljón Evrum síðar blasir svarið við.
Hlustiði!
www.audna.is - www.edih.is