
Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
X-Nýsköpun, vísindin og við - Smári McCarthy
X-Nýsköpun, Smári McCarthy
Smári McCarthy er gestur okkar í þessum þætti. Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun, þekkingu, hlutverk ríkisins í Nýsköpun og margt margt fleira. T.d. hvernig við Íslendingar gætum eignast okkar eigin geimfara.
Tíundi þáttur Auðvarpsins er jafnframt fjórði þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum. Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.
Hvernig nýtum við okkur þekkingu og hugmyndir fólksins í landinu til að byggja upp betra samfélag, þurfum við að hjálpa fólki til að nýta sér þekkingu sína? Er kerfið að hjálpa eða þvælast fyrir.
Í þessum þætti fer fráfarandi þingmaður Pírata, Smári McCarthy vel yfir sínar áherslur á tækifærunum sem við okkur blasa. Segja má að þar sem Smári er að hætta í pólitík sé hann skemmtilega opinn og hispurslaus í sinni orðræðu. Hann fer inná samanburð á Íslandi og Suður Kóreu ásamt að velta fyrir sér af hverju við Íslendingar erum feimnir við að gerast aðilar að erlendum stofnunum.
X-Nýsköpun
www.audna.is - www.edih.is