Betri helmingurinn með Ása

#102 - Ása Steinars & Leo

April 06, 2023 Ási Season 1 Episode 102
Betri helmingurinn með Ása
#102 - Ása Steinars & Leo
Show Notes

Áhrifavaldurinn og ævintýrakonan Ása Steinarsdóttir mætti til mín í áhugavert og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi ævintýramanninum Leo Alsved.
Ása hefur verið að gera rosalega hluti á samfélagsmiðlum síðum þar sem hennar aðal fókus hefur verið ferðamennska og þá sérstaklega á Íslandi. Ása sá tækifæri í að sameina tvö af sínum stærstu áhugamálum, ljósmyndun og ferðamennsku fyrir þónokkru síðan en byrjaði þetta allt á bloggi en er hún í dag einn stærsti áhrifavaldur landsins með rúmlega 600 þúsund fylgjendur á tiktok og hátt í 800 þúsund á Instagram.
Leo vinnur í dag í kringum miðlana hjá henni Ásu enda nóg um að vera í allskonar alþjóðlegum samstörfum. Áður fyrr rak Leo þó vinsælt viðburðarfyrirtæki sem sérhæfði sig í siglingar og skíða festivölum.
Ása og Leo kynntust einmitt á slíku festivali en fór Ása þá með vinkonu sinni í siglingar festival í Króatíu og var það svo gaman að þær bókuðu strax ferð í skíðafestivalið hjá fyrirtækinu hans Leo. Það var einmitt þar sem hlutirnir fóru að gerast en bauð Ása honum að koma í heimsókn sem hún bjóst þó ekki við að yrði strax nokkrum vikum síðar. Hlutirnir þróuðust hægt hjá þeim enda búsett í sitthvoru landinu. Það var því heilum sex mánuðum eftir þeirra fyrsta stefnumót að þau ákváðu að reyna á að vera par og eru þau í dag gift með eitt barn.
Í þættinum ræddum við meðal annars um líf þeirra í áhrifavaldaheiminum, ævintýrin, ferðalög og hver er þeirra uppáhaldsstaður í heiminum, ljósmyndunina, rómantíkina og margt fleira. Svo fengum við að sjálfsögðu að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Ása stalst í að nota tannburstann hans Leo í heila viku.


Þátturinn er í boði:

RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/

Dominos  -  https://www.dominos.is/

Smitten  - https://smittendating.com/

Augað - https://www.augad.is/