Betri helmingurinn með Ása
Betri helmingurinn með Ása
#17 - Beggi Ólafs & Hildur Sif
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Bergsveinn Ólafsson eða Beggi Ólafs, eins og hann er gjarnan kallaður, er fyrirlesari og rithöfundur með MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði ásamt því að halda úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, 24/7. Að auki Beggi mikill íþróttamaður og spilaði hann knattspyrnu af kappi þangað til snemma á síðasta ári þegar hann lagði skónna á hilluna en þá var hann fyrirliði Fjölnis og átti að baki eina 166 leiki með félaginu.
Beggi og hans betri helmingur, Hildur Sif Hauksdóttir, hafa verið saman í átta ár og var virkilega gaman að fá þau til mín í einlægt og ótrúlega skemmtilegt spjall.
Hildur hefur unnið mikið í kringum samfélagsmiðla undanfarin ár en hún er með BSc í sálfræði og starfaði sem flugfreyja hjá Icelandair áður en hún breytti um vettvang og vinnur nú í Alþjóðadeild hjá fyrirtækinu Salt Pay þar sem hún starfar um alla Evrópu.
Í þættinum ræddum við meðal annars fótboltann, fjarsambönd og þjóðhátíðina þar sem ástin kviknaði hjá þeim og deildu þau með mér mörgum geggjuðum sögum, þar á meðal einni góðri þar sem óheppilegar meltingartruflanir Begga í hjólatúr í San Francisco komu við sögu.
Virkilega gott spjall við þetta geggjaða par og ég segi bara njótið vel!
Þátturinn er í boði:
Blush.is - https://blush.is/
Spaðinn - https://spadinn.is/
Ajax
Instagram:
https://www.instagram.com/betrihelmingurinn_/