Skraut Bakkusar
Skraut Bakkusar
Venjulegt líf - Axel
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Tuttugasti þáttur Skrauts Bakkusar ber nafnið venjulegt líf því gestur minn að þessu sinni fer yfir það með mér hversu dýrmætt það er að eignast venjulegt líf.
Axel á langa edrúgöngu en það eru 34 ár síðan hann tók síðasta sopann.
Axel hefur unnið mjög djúpt í sjálfum sér og kann AA fræðin mjög vel. Það var mjög lærdómsríkt að spjalla við hann um sína reynslusögu og svo hvernig hann opnaði á tólf sporin tuttugu daga gamall, ennþá inni á Vogi.
Hann fer yfir þessa andlegu leið í batanum með mér en það er mjög gefandi að tengjast fólki sem hefur fundið þá leið og er tilbúið að gefa af sér á svona opinn og heiðarlegan hátt.
Að ná í svona dýpt skilar svo fallegri vinnu og fallegu lífi.
Ég er ríkari í dag en ég var í gær eftir spjall mitt við Axel .
Axel er einn af oss 🙏
Guð gefi mér æðruleysi,
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt,
og vit til að greina þar á milli 🙏