Eftirmál
Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.
Eftirmál
Krýsuvíkurmálið
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þessa sorglega máls og fer fer yfir það í þættinum.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
- Birgisson
- Scandi Home
- Góa
- Sebastian hárvörur
- Bliss
- Húðfegrun