Eftirmál
Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.
Episodes
34 episodes
Hryðjuverkamálið
Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuver...
Leiðangur Johns Snorra á K2
Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að...
Ashley Madison og Vodafone-lekinn
Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett upp persónulegum málum fólks um al...
Krýsuvíkurmálið
Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei sv...
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni
Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði v...
Rock star Supernova ævintýrið
Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og samkeppnisaðilar á marka...
Wok On málið / Quang Le
Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaði...
PIP brjóstapúðamálið
Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við...
Skáksambandsmálið
Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáks...
Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan
Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New...
Hvarf Lúðvíks Péturssonar í Grindavík
Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór ...
Braggamálið
Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram ú...
Gýgjarhólsmálið
Í mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og fjölskylda bræðranna sat eftir í sárum. Í þættinum fara ...
Flugslysið í Skerjafirði
Í ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu. Flugslysið vakti strax upp stórar spur...
Öskjuhlíðarmálið
Eitt þekktasta sakamál okkar tíma er Öskjuhlíðarmálið eða GAP málið svokallaða. Fá morðmál hafa vakið meiri óhug meðal þjóðarinnar sem hélt niðri í sér andanum á meðan leit stóð yfir af Einari Erni Birgis, farsælum og vinamörgum viðskipta- og í...
Jón stóri
Jón stóri var á árunum 2009 til 2013 umtalaðasti og umdeildasti maður landsins. Hann lifði og hrærðist í undirheimunum og talaði opnskátt um fíkniefnaneyslu og glæpi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlaviðtölum þar sem allt var látið flakka. Líf ha...
Aukaþáttur - Vendingar í máli Söndru Sigrúnar
Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands. Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins. Lögmaðurinn og Margr...
Búsáhaldabyltingin
Mótmælin í kjölfar efnahagshrunsins 2008 eiga engan sinn líka í sögunni. Allt byrjaði þetta friðsamlega en mótmælin stigmögnuðust samhliða reiði og ólgu í samfélaginu. Á endanum sauð upp úr og upplausnarástand ríkti á Austurvelli, þar sem eldur...
Rauðagerðismálið
Nýr veruleiki blasti við í íslensku samfélagi einn sunnudagsmorgun í febrúar 2021 þegar fréttir bárust af kaldrifjuðu morði í Rauðagerði, götu í rólegu fjölskylduhverfi í Reykjavík. Sá myrti var skotinn níu sinnum fyrir utan heimili sitt. Atbur...
Mál Róberts Downey og uppreist æra
Líklega óraði engan fyrir því að barátta þolenda kynferðisbrotamannsins Roberts Downey fyrir upplýsingum um uppreista æru myndi verða til þess að sprengja ríkisstjórn Íslands haustið 2017, en svo fór. Uppreist æru málið hristi hressilega upp í ...
Bitcoin-málið
Innbrot í gagnaver í Reykjanesbæ í lok árs 2017 markaði upphaf Bitcoin-málsins svokallaða, sem oft er talað um sem stærsta þjófnað Íslandssögunnar. Málið tók nýja og ævintýralega stefnu þegar Sindri Þór Stefánsson, einn þeirra sem tók þátt í in...
Hvarf Valgeirs Víðissonar
Í sumar eru 30 ár síðan Valgeir Víðisson hvarf sporlaust af heimili sínu á Laugavegi. Hvarfið er eitt umtalaðasta og dularfyllsta lögreglumál okkar tíma og rannsóknin stóð yfir árum saman. Ótal flökkusögur urðu til og lögeglu bárust...
Lekamálið
Hanna Birna Kristjánsdóttir sætti líflátshótunum og þurfti lögregluvernd þegar hún var innanríkisráðherra fyrir áratug. Ástæðan er Lekamálið svokallaða, þegar minnisblaði með persónuupplýsingum um hælisleitendur var lekið úr ráðuneyti hennar ti...