
Góðan daginn Grindvíkingur
Hlaðvarpið Góðan daginn Grindvíkingur er hlaðvarp Grindvíkinga á vegum Grindavíkurbæjar. Ætlunin er að taka viðtöl við einstaklinga sem hafa frá áhugaverðum og fróðlegum hlutum að segja – hvort sem um ræðir sögur frá liðnum áratugum, verkefni dagsins í dag eða hugmyndir um framtíð Grindavíkur. Markmiðið er að hlaðvarpið verði vettvangur þar sem Grindvíkingar, hvar sem við erum, getum haldið tengslum og deilt reynslu okkar.
Góðan daginn Grindvíkingur
XB - Kosningavarp ungmennaráðs
Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240.
Ásrún Kristinsdóttir er oddviti Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Tómas Breki, fulltrúi ungmennaráðs, og Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður Þrumunnar, spyrja Ásrúnu nokkurra spurninga um flokkinn, fyrir hvað þau standa, af hverju við ættum að setja x við B og fleira í þeim dúr. Þar að auki fengum við að kynnast Ásrúnu aðeins betur og heyra hver hún er.
Takk fyrir að hlusta og endilega deilið áfram.
Intro lag: Metro - Lil Stony (Þorsteinn Michael Guðbjargarson)