Góðan daginn Grindvíkingur
Hlaðvarpið Góðan daginn Grindvíkingur er hlaðvarp Grindvíkinga á vegum Grindavíkurbæjar. Ætlunin er að taka viðtöl við einstaklinga sem hafa frá áhugaverðum og fróðlegum hlutum að segja – hvort sem um ræðir sögur frá liðnum áratugum, verkefni dagsins í dag eða hugmyndir um framtíð Grindavíkur. Markmiðið er að hlaðvarpið verði vettvangur þar sem Grindvíkingar, hvar sem við erum, getum haldið tengslum og deilt reynslu okkar.
Góðan daginn Grindvíkingur
#17 Guðrún Pétursdóttir og Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í þessum þætti af Góðan daginn Grindvíkingur ræðum við við Guðrúnu Pétursdóttur og Ingibjörgu Lilju Ómarsdóttur, sérfræðinga í endurreisn samfélaga í kjölfar náttúruhamfara.
Í viðtalinu ræða þær m.a. hvernig hamfarir hafa áhrif á fólk og samfélög til lengri tíma og hvers vegna hver rödd allra Grindvíkinga skiptir máli þegar kemur að bataferlinu, uppbyggingu og framtíðarsýn Grindavíkur.