HR Hlaðvarpið
HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).
HR Hlaðvarpið
Verkfræðivarpið // 7. þáttur: Gervigreind mun gjörbreyta kennslu í verkfræði
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í 7. þætti Verkfræðivarpsins er sagt frá hvernig að kennsla í verkfræði og fleiri greinum mun taka stakkaskiptum með tilkomu gervigreindar. Vitvélar eins og ChatGPT hafa fært hugmyndaheimi kennslufræðinnar bæði ógnanir og tækifæri. Rætt er um hvernig verkfræðin getur brugðist við til að tryggja að verkfræðingar framtíðarinnar geti tileinkað sér nauðsynlega þekkingu og færni. Meðal þess sem verður kynnt er CDIO-hugmyndafræðin, kennsla með reynsluverkefnum (experiential) og leikjum (gamification). Þá er sjónum beint að HR og staðsetningu skólans í Öskjuhlíð og við Nauthólsvík, sem býður upp á einstæða möguleika til að koma þekkingu til nemenda í gegnum verkefni og leiki. Loks er rætt um ChatLearn-verkefnið, en það snýst meðal annars um að fræðifólk innan HR er nú að þróa spjallmenni (chatbot) til að kenna verkefnastjórnun á háskólastigi. ChatLearn er alþjóðlegt Erasmus+-verkefni þar sem að háskólar frá Finnlandi, Austurríki og Ítalíu eru þátttakendur, auk HR.
UM VERKFRÆÐIVARPIÐ
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu (samskipti@ru.is). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.