HR Hlaðvarpið
HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).
Podcasting since 2022 • 105 episodes
HR Hlaðvarpið
Latest Episodes
Verkfræðivarpið // 36. þáttur: Sveinn V. Ólafsson vélaverkfræðingur
Sveinn V. Ólafsson er vélaverkfræðingur með langa og fjölbreytta starfsreynslu. Hann starfar sem sjálfstæður ráðgjafi og fyrirlesari á sviði gæðastjórnunar. Hann lauk meistaraprófi (MSc) í flug- og kerfisverkfræði við Virginia Tech í Bandaríkju...
•
40:34
Verkfræðivarpið // 35. þáttur: Ásdís Sigurðardóttir gæða- og umbótastjóri hjá Orkunni
Ásdís Sigurðardóttir er gæða- og umbótastjóri hjá Orkunni. Hún er vélaverkfræðingur með sérhæfingu í framleiðslu- og gæðastjórnun frá NTNU í Noregi. Ásdís hefur víðtæka starfsreynslu, meðal annars hefur hún starfað við mannvirkjagerð og við ver...
•
25:36
Íþróttarabb HR// 23. þáttur - Á toppinn með Kjartani Stefánssyni
Gestur þáttarins er Kjartan Stefánsson, margreyndur grunnskólakennari og knattspyrnuþjálfari með meiru. Kjartan hefur kennt skólaíþróttir við Árbæjarskóla við góðan orðstír og stundar meistaranám við íþróttafræðieild HR.Í þættinum ræðir Sve...
•
38:00
Verkfræðivarpið // 34. þáttur: Um iðnaðarverkfræði og aðgerðarannsóknir á Íslandi - Rætt við Pál Jensson prófessor við HR.
Páll Jensson prófessor er einn af mikilvægustu fræðimönnum hérlendum í hópi verkfræðinga. Hann byggði upp kennslu og rannsóknir í iðnaðarverkfræði á Íslandi með félaga sínum Pétri heitum Maack prófessor, en þeir voru lykilmenn í Verkfræði...
•
28:53
Sálfræðispjallið//Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði-seinni hluti
Í þessum þætti má hlýða á hlaðvörp nemenda við sálfræðideild sem unnin voru í réttarsálfræði. Í þættinum taka nemendur fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar. Þetta er seinni þáttur af tveimur.Réttarsálfræði er fræðigrein...
•
41:41