HR Hlaðvarpið

Íþróttarabb HR// 24. Þáttur - Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Sillu

Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.

0:00 | 28:24

Vorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og umsóknum. Nefnd var skipuð og valdi hún tvö verkefni til viðurkenningar árið 2025.  

 Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir oftast kölluð Silla fékk viðurkenningu fyrir sína umsókn vorið 2025 og hún er gestur þáttarins. Sveinn Þorgeirsson, umsjónarmaður meistaranáms til kennsluréttinda (MEd) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, ræðir við Sillu og kemur hún í viðtalinu inn á ýmsar áskoranir í starfi íþróttakennarans og lýsir því hvernig námsmatið sem hún studdist við varð til. 

UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI
Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

UM ÍÞRÓTTARABBIÐ
Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

Samskiptateymi HR  hefur umsjón með HR hlaðvarpinu (samskipti@ru.is). 
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.