HR Hlaðvarpið
HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).
HR Hlaðvarpið
Verkfræðivarpið// 43. þáttur - Sveinbjörn Jónsson
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í þessum þætti Verkfræðivarpsins ræðum við við Sveinbjörn Jónsson, verkefnisstjóra hjá ÍAV, um nýju farþegamiðstöðina Vör við Skarfabakka í Reykjavík, sem afhent var Faxaflóahöfnum í mars 2026.
Sveinbjörn er byggingarverkfræðingur með MSc-gráðu frá Háskóla Íslands og MPM-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.
Hluti þáttarins var tekinn upp í mannvirkinu sjálfu, en í meginviðtalinu ræða Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Sveinbjörn um verkefnið, áskoranir í framkvæmdinni, samstarf ólíkra aðila og það sem þarf til að leiða stór og flókin innviðaverkefni til farsællar niðurstöðu.
UM VERKFRÆÐIVARPIÐ
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.